Í hvítum kjól
LjóðabókSnemma árs árið 1993 sendi ég handrit inn í ljóðahandritasamkeppni sem Lyf hf. efndi til. Fyrirtækið hafði haft þann hátt á um áratuga skeið að gefa út ljóðabók um jól og senda hana öllum læknum, lyfjafræðingum og dýralæknum endurgjaldslaust. Viti menn, mitt handrit var valið í formála bókar skrifar Guðmundur Hallgrímsson sem rak lyfjafyrirtækið Lyf hf; „Ljóðabókin sem Lyf hf sendir frá sé að þessu sinni er eftir konu úr heilbrigðisstétt. Þetta er mér sérstök ánægja og var vissulega komin tími til að kona kveddi sér hljóðs í þessari ljóðabókaséríu. Rósa Ólöf hjúkrunarfræðingur kemur víða við í ljóðum sínum, en óhætt mun að fullyrða að meginstefið í ljóðunum sé glíman við Guð og hið hversdagslega líf. Það er síðan lesandans að dæma hvernig honum finnst skáldinu takast í þessari miklu og síendurteknu glímu.“ Það var Katrín Jónsdóttir grafískur hönnuður sem myndskreytti bókina, af snilld sinni. Við tók hjá mér mikil barátta og svo fór að ég faldi bókina mína. Aðallega vegna ritdóms sem birtist í Mbl eftir útkomu hennar. Fyrir hafði ég enga trú á mér sem rithöfundi og barði mig niður eftir útkomu bókarinnar. Ég skrifaði lítið næstu 2 árin. Bókina má nálgast á Borgarbókasafninu í hinum ýmsum útibúum.